| Gönguleiðir | Aðrar leiðir | Skýringar | Tenglar | |
Vefurinn er safn GPS punkta, sem undirritaður hefur safnað á síðustu árum.
Aðaláherslan er lögð á gönguleiðir en einnig fljóta aðrar leiðir með. Vefsíðan
byggist að mestu upp á einstökum leiðum, skýringum og tenglasafni.
Um GPS punkta
GPS punktar og aðrar upplýsingar í þessum vef eru birtir án ábyrgðar. Þeir, sem nota GPS punkta verða að gera sér ljóst að þeir geta verið rangir og aðstæður geta verið breyttar frá þeim tíma, sem punktarnir voru teknir. Sérstaklega á þetta við punkta, sem eru á jöklum.
Þótt gefnir séu nokkrir punktar í leið, er almennt ekki hægt að fara beint á milli þeirra í blindni.
Eru gögnin rétt?
Það eru án efa villur í gögnunum á vefnum. Vinsamlega látið vita ef villur
finnast eða eitthvað má betur fara.
Miðlun og söfnun GPS punkta
Ég hef safnað GPS punktum og ferlum árum saman. Sumt af því hef ég sett á þessa
vefsíðu, sem ég hef haldið úti frá árinu 1996 (gamla GPS síðan). Gögnin eru sett fram þannig að
auðvelt er að hlaða gögnum frá henni inn í GPS tæki með forritum í tölvum. Í
upphafi var hugmyndin að miðla gögnum frá öðrum en fáir sýndu því áhuga og það
hefði reyndar kostað nokkra vinnu að fara yfir gögn frá öðrum til að tryggja að
þau væru rétt. Í seinni tíð hefur áherslan verið lögð á gönguleiðir.
Öllum er heimilt að nota gögnin, sem eru á vefnum.
------------------------------------
Einar Hrafnkell Haraldsson,
ehh@simnet.is