You are here

Styrkir úr Hrafnkelssjóði

Hlutverk Hrafnkelssjóðs er að veita íslenskum stúdentum styrk, þeim er þess þurfa, til að rækja nám við erlenda háskóla og gilda um það eftirfarandi reglur:

  1. Íslenskir stúdentar, sem hyggja á nám erlendis á meistara- eða doktorsstigi, og hafa lokið íslensku stúdentsprófi með að minnsta kosti annarri einkunn, eiga rétt á að sækja um styrk til sjóðsins.
  2. Umsækjendur skulu greina frá eftirfarandi:
    • Námsgrein og skóla.
    • Staðfestri skólavist.
    • Ferilsskrá.
    • Hvernig námið muni gagnast umsækjanda og framtíðarsýn.
    • Hvort umsækjandi njóti styrkja annars staðar frá.

    Afrit prófsskírteinis og meðmæli fylgi umsókn.

  3. Stjórn sjóðsins ákveður styrkupphæð hverju sinni.
  4. Stjórn Hrafnkelssjóðs auglýsir eftir umsækjendum um styrk og skilafrest umsókna. Styrkúthlutun er tilkynnt 13. ágúst það ár, sem styrkur er veittur og er miðað við þann dag, samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins dagsettri þann 5. febrúar 1930.